Frekar hlutabréf en ríkisskuldabréf

Ég skil vel að ríkið vil fjármagna sig með skuldabréfum, en mér finnst neikvætt að taka lán vegna þess að það þarf að endurgreiða þau. Mun jákvæðara ef tekjur ríkisins eru af skatttekjum af fyrirtækjum. Til þess að fyrirtæki geti borgað skatta og skilað arði til eiganda mega skattprósentur ekki vera of háar. Einnig þurfa prósenturnar að vera þær sömu til langs tíma þannig að fyrirtæki geti gert langtímaáætlanir. Í dag er mikið fé einstaklinga bundið í ríkisskuldabréfum og hlutabréfamarkaðurinn óvirkur. Það er til mikið af vel reknum fyrirtækjum, sem geta haft bjarta (eða bjartari) framtíð fyrir sér ef þau fara á hlutabréfamarkaðinn. Stór fyrirtæki geta verið þar sjálfstæð og mörg smá fyrirtæki sem sjóður. Vegna þess að margir hafa brennt sig á vitleysuna fyrir hrunið er nauðsynlegt að fjárfestar geta fengið ítarlegar upplýsingar um félögin til þess að meta hvort þeir vilja fjárfesta í þeim. Einnig tel ég mikilvægari að fjárfestar geti fylgst náið með starfsemi þeirra, en viðskiptaleyndin.
mbl.is Bólueinkenni á skuldabréfamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband