Martin Luther var talinn gyðingahatari

Kemur ekki á óvart vegna þess að Hallgrímur var mótmælatrúar, en Martin Luther var talinn gyðingahatur, sbr. rit hans; ,,Von den Jüden und jren Lügen“.

http://en.wikipedia.org/wiki/On_the_Jews_and_Their_Lies#Evolution_of_his_views 

Vegna þess að Jesús var gyðingur vaknar spurning hvort mótmælendur hata þann sem þeir trúa á?

 

Þegar ég var í barnaskóla var ein af kennslubókunum ,,Bíblíusögur fyrir barnaskóla“. Þar stendur m.a. í kaflanum: Hugmyndir Gyðinga, - fyrirætlanir Guðs - ,, Ísraelsmenn sýndu oft mikillæti bæði í ættjarðarást sinni og guðsdýrkun. Þeir álitu, að Guð blessaði þá eina, og gerðu sér háar hugmyndir um þá tíma, er Ísrael fengi öll yfirráð í heiminum og allar aðrar þjóðir yrðu þjónar þeirra, yfirþjóðarinnar.” Seinna stendur: ,,En þetta var ekki rétt, því að kærleikur Guðs náði til allra þjóða jafnt.” Með öðrum orðum lærðum við að gyðingar hafa rangt fyrir sér! Ég veit ekki hvort nemendur, sem voru gyðingar, hafa orðið fyrir einelti vegna þessa. Bókin var gefin út 1965 og í seinni útgáfum var ofangreint leiðrétt. Þótt að þetta er gömul bók þá er alltaf hætta á að svona áróður komi fyrir aftur. Mér finnst rétt að kenna um sérkenni hverra trúarbragða og það sem er sameignilegt með þeim, m.a. hina gullnu reglu. Sjá nánar um hana:

http://en.wikipedia.org/wiki/The_Golden_Rule


mbl.is Mótmælir lestri Passíusálmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Gyðingar höfðu af hatri fyrst
harðlega klagað Jesúm Krist,"
Jonsi.

jonsi (IP-tala skráð) 24.2.2012 kl. 15:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband