20.7.2012 | 12:12
FBI samkenndi ranglega fingraför eftir hryðjuverk
Það kemur á óvart að búlgörsk stjórnvöld treysta FBI til þess að aðstoða við að bera kennsl á mann sem sprengdi sjálfsmorðssprengju í Búlgaríu í vikunni. Árið 2004 var lest sprengd á Spáni þannig að 191 létust og 1800 særðust. Við rannsóknina fann spænska lögreglan fingraför, sem FBI samkenndi ranglega við Brandon Mayfield. Þrátt fyrir að FBI sendi fingrafarasérfræðing til Spánar tókst þeim ekki að sannfæra lögregluna þar um að þetta voru fingraför Brandons. Seinna handtók Spænska lögreglan Ouhnane Daoud og reyndust fingraförin vera eftir hann. Sjá nánar m.a.:
http://en.wikipedia.org/wiki/Brandon_Mayfield
http://www.fbi.gov/news/pressrel/press-releases/statement-on-brandon-mayfield-case
FBI aðstoðar við að bera kennsl á árásarmanninn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.