Gangandi vegfarendur neðst í fæðukeðju umferðar.

Ég er alveg á móti því að það má hjóla reiðhjólum og aka rafvespum á göngustígum. Þótt að hjólendur og ökumenn rafvespur eiga að víkja fyrir gangandi vegfarendur þá hef ég oft lent í því að þeir gera það ekki. Þeir bruna áfram á miklum hraða og það sem verra er hljóðlaust. Það hefur stundum komið fyrir að ég hef t.d. gengið Laugarveginn í Reykjavík og ætlaði að beygja til þess að líta í búðarglugga þegar munar litlu að ég hef verið hjólaður niður. Mér finnst sjálfsagt að ökumenn rafvespur þurfa að taka próf og vera með hjálm. Einnig að rafvespur sé skráningarskyldar og með ábyrgðatryggingu. Hver borgar tjónið ef ökumaður rafvespur slasar gangandi vegfaranda? Hver ber ábyrð ef ökumaður rafvespur ekur á götu og lendir í slysi vegna þess að hann braut umferðarlögin? - Ég ók í Kaupmannahöfn í fyrra og þar var mikið af hjólreiðastígum þannig að hjólendur voru ekki að þvælast fyrir gangandi vegfarendur. Þar á móti hafa orðið nokkur slys þegar ökumenn bifreiða beygja til hægri og í veg fyrir hjólendur. Ég tók eftir að ég þurfti að gæta mjög mikillrar varúðar þegar ég beygði til hægri, vegna þess að það var erfitt að sjá reiðhjól nálgast á miklum hraða.
mbl.is Rafmagnsvespu ekið á barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband