Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Ekki jafn hræðilegt og svörtu kjólana hérlendis.

Það er auðvitað spurning um smekk og það sem Mörtu finnst hryllingslegt finnst öðrum flott eða fallegt. Mér hefur fundist undarlegt hve svartur fatnaður hefur verið lengi vinsæll hérlendis hjá báðum kynjunum. Auk þess sem svart er þunglyndislegur litur er þetta ekki skynsamur  klæðnur í myrkri. Erlendis hef ég oft séð dömur í fatnað í fögrum litum, sem er mjög sjaldgæft hérlendis.
mbl.is Hryllilegustu kjólarnir á Óskarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt hjá Landsfundinum -

Gott að þetta var fellt út enda mjög óljóst og umdeilanlegt hvað eru Kristinn gildi. Siðferðisgildi geta verið góð þótt þau eru ekki kristinn og grimdarverk hafa verið framin í nafni Kristni. Eftir efnahagshrunið var mikil aukning í Ásatrúarfélaginu og sagði einn félaginn að ástæðan væri að menn sæktu í siðferðisleg gildi Hávamáls. Sýndi hann mér áhugaverða grein frá um 1950 um það. Ef menn vilja einhver gildi við lagasetningu mætti miða við hina gullnu reglu sem er í flestum trúarbrögð. Mjög einföld, skýr og skynsöm.

http://en.wikipedia.org/wiki/Golden_Rule 

 


mbl.is Tillaga um kristin gildi felld út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég tók líklegast fyrstu myndina af eldgosinu.

Ég er með um 80 myndir, sem ég tók af gosinu, sjá nánar undir ,,Iceland”.

http://www.interestingworld.info/

 

 

 


mbl.is Blys á allri gossprungunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þörf á CALM-lögum hérlendis?

Mér hef oft fundist að sjónvarpsauglýsingar hérlendis einnig vera með hærra hljóði en annað efni sem sent er út, þannig að ég hef þurft að slökkva á hljóðinu á meðan þær eru sýndar. - Annað skylt þessu er að í mörgum íslenskum heimildaþáttum er spiluð tónlist samtímis og talað er þannig að það er stundum mjög erfitt að heyra það sem sagt er. Mér finnst mun betra að sleppa tónlist eins og gert er í 60 mínutna sjónvarpsþáttunum.
mbl.is Lækka í auglýsingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ítrekun Hagstofunnar röng.

Menn eiga auðvitað ekki þurfa að eyða tíma­ og jafnvel peningum í að tilkynna Hagstofunni að þeir vilja ekki taka þátt í rannsókn. Það er engin skylda til þess að taka þátt í slíkum rannsóknum og hef menn svara ekki spurning hlýtur Hagstofan að skilja að menn vilja ekki taka þátt. Þessi afstaða Hagstofunnar er bara frekja og hroki ríkisstofnunar sem við eigum ekki að sætta okkur við.


mbl.is Persónuvernd gagnrýnir Hagstofuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almennir læknar jafnhæfir og Björn Zoëga?

Treysta þessir læknar, sem eru ekki með sérfræðiréttindi, til þess að framkvæma flóknar skurðaðgerðir eins og Björn sem er sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, ásamt því að stjórna stærsta spítala landsins? Ég, ásamt mörgum öðrum, hafa því miður slæma reynslu af læknum sem hafa ekki sérfræðiréttindi vegna rangra sjúkdómsgreiningar og meðferðar, sem sérfræðilæknar hafa síðan leiðrétt.


mbl.is Segja launahækkun forkastanlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála Óla

Ég hélt að það þurfti að hækka skatta og spara mikilvæga starfsemi ríkisins vegna þess að ríkið skorti peninga, en það virðist vera rangt ef það hefur ráð á að kaupa Grímsstaðir, búa til tvær jarðgöng og 1,3 milljarð í nýja stjórnarskrá. Það er of auðvelt fyrir ríkið að eyða peningum sem það tekur af okkur.


mbl.is Kaupum jarðir en ekki lífsnauðsynleg tæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástarlásar og Avatar í Kína

Ég tók þetta myndband í Zhangjiajie World Geological Park í Hunan fylkinu, Kína. Klettdrangarnir þar eru taldir meðal fyrirmynda að hinum fljótandi klettum í kvikmyndinni Avatar og hefur þess vegna einn þeirra verið nefndur; ,, Avatar Hallelujah Mountain". Þarna eru einnig ástalásar.

http://youtu.be/rG3Dbc2UxTE

 

 


mbl.is Ástarlásarnir fá blessun stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villa í fréttinni

Odd Reidar Humlegård er yfir ,,politidirektør” sem er svipuð staða og ríkislögreglustjórinn hérlendis, en ekki lögreglustjóri Osloborgar.


mbl.is Humlegård nýr lögreglustjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri slík hegðun refsiverð hérlendis?

Eftir að hafa séð myndband af ruddalegri hegðun þeirra í kirkju held ég að slíkt gæti einnig verið refsivert hérlendis, t.d. skv. 125. gr. og 233 gr. almennra hegningalaga. Þótt að þær segjast hafa verið að mótmæla Putin var þetta frekleg innrás á helgum stað þar sem fólk iðkar trú sína. Fyrir marga er trúarbrögð síðasta hálmstráið í lífi þeirra og m.a. kirkjur mikilvægt andlegt athvarf fyrir þá. Merkilegt að ungliðahreyfing Amnesty International skuli styðja guðlast.


mbl.is Pussy Riot sakfelldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband