Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
24.6.2012 | 10:28
Sammála fjármálaráðherranum.
Þótt að ég hef engan áhuga á að ganga í ESB, er ég sammála honum. Ég skil Þjóðverja mjög vel að þeir vilja ekki lána Grikkum meira peninga eða styrkja nema þeir ráði hvernig þeir nota þá ásamt ströngu eftirliti. Þeir sem lána vilja auðvitað gera ráðstafanir til þess að fá peningana ásamt vöxum til baka, sérstaklega þegar engin ástæða er til þess að treysta lántakanda.
Þjóðverjar hafa almennt orð á sig fyrir að vera vinnusamir, skipulagðir og agaðari. Mér þótti þess vegna merkilegt að taka eftir þessum eiginleikum í Þýskum samfélögum í Suður Ameríku þegar ég var þar s.l. vetur/vor. Meðal annars vegna slæms stjórnmálaástands í Þýskalandi settust margir að í Puerto Varas og nágrannabyggðum í Chile um 1851 í boði ríkisstjórnar þar. Á Þýska klubbnum í Puerto Varas sá ég tilvísun á vegg þar sem stóðar að þeir ætla að verða jafn vinnusamir og heiðarlegir og bestu Chilebúar. Verslunareigandi þarna sagði mér að hann lærði vinnusemi af Þýsku ömmu sinni, en hann væri einnig af Suður Evrópskum ættum þar sem meiri áhersla væri á að njóta lífsins. Einnig heimsótti ég Filadelfia í Paraguay þar sem Mennonitear settust að eftir að hafa flúið frá Rússlandi og seinna Sovétríkjunum þegar það varð til. Þeir fengu að setjast að á harðbýlasta svæðinu í Paraguay og hafa byggt upp öflugt samfélag. Þeir komu upphaflega frá Þýskumælandi löndum og tala Plattdeutsch. Ég tók eftir að þau samfélög sem vegna vel í Suður Ameríku leggja sérstaka áherslu á heiðarleika, en fyrir utan Þýska samfélagið í Chile, eru það Braselíumenn og Uruguyar. Þetta er ekki vísindaleg rannsókn heldur byggist aðallega á spjalli við fólk.
Vill að ESB fái ríkisstjórn og forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2012 | 17:29
Sérkennilegt orðalag hjá Guðbjarti.
Mér sérkennilegt orðalag hjá Guðbjarti að ,,ákveðnir aðilar eða lítill hópur sem geti tekið til sín mikið af verðmætum. Orðalagið gefur til kynna að þeir eru að taka eitthvað sem þeir hafa ekki unnið fyrir og hljómar nánast eins og þjófnaður. Það sem virðist rugla hann í ríminu er að það er auðvelt fyrir ríkið að taka til sín verðmæti, sem aðrir hafa unnið fyrir. Ríkið reynir að torvelda að einstaklingar og fyrirtæki græði og skapi verðmæti og ef það mistekst hjá ríkinu, þá refsar það þá af hugsjónarástæðum. Ég skil vel að ríkið hefur þurft meira fé eftir efnahagsrhrunið til þess að sinna grunnskyldum sínum, en að eyða 1,3 milljarð í að reyna að búa til nýja stjórnarskrá er bruðl á fé. Það virðist felast í þessari jafnaðarhugsjón vinstri manna að allir eiga að hafa það jafnskítt og nauðsynlegt að taka hvatann til þess að skapa verðmæti og afla tekna vegna þess að ríkið hirðir slíkt af hugsjónarástæðum.
Hamingjan fylgir ekki tekjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2012 | 20:41
Var gerð skoðunarkönnun?
Mér finnst að Kjartan getur ekki fullyrt að almenn ,,óánægju gætti meðal borgarbúa með framkvæmd hátíðarhaldanna, nema aðferðafræðilega rétt skoðunarkönnun hafi verið framkvæmd sem sýndi fram á það. Mér sýnist flestir skemmta sér vel og hátíðin síst verri en fyrir þjóðhátíðir. Mér finnst gott að það voru ekki tónleikar um kvöldið vegna þess að slíkt fylgir oft ölvunarlæti. Mér skilst að það var ákveðið að sleppa tónleikunum til þess að spara peninga og er það bara sjálfsagt. - Mér finnst að Reykjavíkurborg hefur í mörgum kjörtímabilum staðið sig vel við að hafa áhugaverð og skemmtilega viðburði.
Gagnrýndi hátíðarhöldin 17. júní | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2012 | 07:06
Emirates er fyrirmyndaflugfélag
Ég hef flogið með mörgum flugfélögum og er greinilegt að þau, sem hafa verið með þau bestu í heiminum, leggja aðaláherslu á að sinna farþegum vel og vera áreiðanleg. Sum flugfélög sýna farþegum mikinn kulda og haga sér jafnvel eins og sumar ríkisstofnanir. Besta flugfélag sem ég hef flogið með er Emirates og áhugavert að bera það saman við önnur flugfélög. Mjög auðvelt er að bóka flug á vef þeirra, en versta bókunarkerfið er hjá American Airlines og Aerolíneas Argentinas. Þeir eru mjög fljótir að svara síma, en versta símsvörun her hjá United Airlines, vegna mjög langs biðtíma og stundum er einhverskonar vélmenni sem svarar. Langur svartími er einnig veikleiki hjá Icelandair, sem er annars ágætis flugfélag. Það getur verið mjög dýrt að hringja í flugfélag erlendis frá. Flugvélarnar og þjónusta um borð hjá Emirates er mjög góð, en verstu flugvélarnar eru hjá SAS og United Airlines.
Hafa beðið í sex klukkustundir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.6.2012 | 13:26
Viðskiptatækifæri fyrir Ísland
Vegna gagnkvæmrar neikvæðrar afstöðu Kína og Noregs gæti verið aukin tækifæri fyrir Ísland að flytja lax til Kína.
Ég hef tekið eftir að í mörgum löndum þykir það flott að nefna á matseðlum hvaðan hráefnið er, t.d. sá ég íslenskar rækjur á matseðli á Bermuda. Í Kína sá ég íslenskan þorsk á einum matseðli. Ég sá oft norskan lax á matseðlum í Kína, en etv. hefur dregið úr því vegna kalt sambands Kína og Noregs. Þannig að etv. er tækifæri fyrir okkur að koma íslenskum lax á matseðlana í stað hins norska. Ég kannaði ekki verð á laxi í Kína, en í Singapore (71% íbúa þar hafa kínverskan uppruna) var mér sagt að þar kostar 1 kg af laxi í verslun 180 SGD, sem er um 16,366 ISK.
Samhliða sölu á laxi mætti kynna Ísland, t.d. með myndum á umbúðum lax og heilsugildi Omega-3. Margir kínverjar borða einkum hrísgrjón, núðlur, grænmeti og kjöti, þannig að líklegast skorti þeim Omega-3 ásamt fleirum efnum sem eru í laxi. Ég heimsótti borgir við sjó þar sem hægt er að kaupa sjávarrétti. Mér fannst samt að fiskur virðist ekki vera algengur matur þar, etv. vegna þess að hann er oft matreiddur í heilu lagi þannig að mikil vinna fer í að plokka öll beinin. Mesta magn Omega-3 er í feitum fiski í köldum sjó þannig að líklegast er mun meira af þessu efni í okkar fiski en hinum kínverska.
Bondevik meinað að fara til Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.6.2012 | 23:59
Glæsilegar kínverskar bifreiðar
Þegar ég var í Chile fyrir skömmu sá ég mjög glæsilegar kínverskar bifreiðar frá JAC og Great Wall. Ég reynsluók ekki þessar bifreiðar og veit ekki um gæði þeirra, en kannski verður hægt að kaup þær hérlendis einhvern tímann.
Nánari upplýsingar:
http://jacen.jac.com.cn/Experience/Index.html
http://www.gwm.com.cn/en/havalm2.asp
Bílasala í Kína upp um 23% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2012 | 20:19
Hefðu frekar átt þegja og fræðast
Í stað þess að púa eins og kjánar hefðu þeir átt að hlusta á ræðurnar og fræðast um útgerðarmál. Mér fannst að Ólöf Ýr Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Vélfags á Ólafsfirði, flytja bestu ræðinu sem ég vonar að muni birtast á prenti og á Youtube. Eftir fundinn útskýrðu sjómenn m.a. kvótakerfið, áhrif veiðgjalds og fiskveiðar almennt fyrir þá sem voru mótmæla gegn fundi þeirra sem starfa við útgerð. Ég hlýddi á tvo og gerðu þeir það mjög vel mér datt í hug að etv. þyrfti að fræða þá sem starfa ekki við útgerð þessi mál betur m.a. Þór Saari.
Atvinnumótmælendur og þý sægreifa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2012 | 19:48
Tvennt sem mér þótti best á fundinum.
Mér fannst að Ólöf Ýr Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Vélfags á Ólafsfirði, flutti bestu ræðinu sem ég vonar að muni birtast á prenti og á Youtube.
Eftir fundinn útskýrðu sjómenn m.a. kvótakerfið, áhrif veiðgjalds og fiskveiðar almennt fyrir þá sem voru mótmæla gegn fundi þeirra sem starfa við útgerð. Ég hlýddi á tvo og gerðu þeir það mjög vel mér datt í hug að etv. þyrfti að fræða þá sem starfa ekki við útgerð þessi mál betur.
Skipin að tínast út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2012 | 20:48
Óviðeigandi spaugstofugrín
Forsetakosningarnar er mjög alvarlegt mál og þurfa fjölmiðlar að vanda mjög umfjöllun. Mér finnst þess vegna mjög óviðeigandi hjá Stöð 2 að fá spaugstofumenn til að hæðast að einum frambjóðanum.
Yfirgáfu kappræður í Hörpu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.5.2012 | 00:02
Gagnleg frétt fyrir Norður Kóreska herinn.
Mér finnst mjög undarlegt að herforinginn skuli segja frá þessu, sem hlýtur að setja fallhlífahermennina í hættu ef þeir eru ennþá þarna eða torvelda slíka aðgerð aftur.
Sendu fallhlífahermenn til N-Kóreu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)